21mars

Ny siða!

Ég hef ákveðið að færa mig á blog.is. Forritið hjá bloggar.is er ekki hugsað fyrir apple því það er fullt sem ég get ekki gert hérna sem ég get gert á PC. Mjög pirrandi. Síðan er líka svo mikill stemmari á blog.is. ;)

Nýja slóðin er:

101isafjordur.blog.is

Tékkið á mér.
21. mars 2007 klukkan 12:21
Marta Sif Ólafsdóttir
Engin athugasemd
19mars

Nótnastífla!

Ég er í góðu skapi. Yndislegt veður í dag og í svona veðri er útsýnið hérna allt í kring alveg ótrúlegt! manni langar bara að leggjast í snjóin og fara að sofa.

Ég var í píanó tíma í morgun og ég var alveg að flippa! Ég get verið svo rosalega óþolinmóð að það er óþolandi. Ég vil bara læra allt strax! Og ég þoli ekki þegar ég kem í tíma, búin að vera að æfa eitthver lög síðan næ ég ekki að spila þó nógu vel og það er bara af því að kennarinn er að fylgjast og þá þarf ég aftur að æfa þau heima. Það er rosalega pínlegt, ég vil bara halda áfram með þetta. En ætli hún viti ekki hvað hún er að gera. Ég er samt farin að spila ágætlega skemmtileg lög núna, ég er komin upp úr góða mamma og gamla nóa tímbilinu. Think god.

Ég er með alveg rosalega... ég ætla að kalla það nótnastíflu, þessa dagana. Mig langar svo að semja lag en það er bara ekki að gerast. Ég er nefnilega með marga texta í vinnslu í hausnum á mér. Æji fuck it. Nenni ekki að pæla í þessu. Ég er meira að segja farin að spila annarra manna lög, það gerist ekki oft. Ég held að gítarinn sé orðin reiður út í mig. Ég held hann myndi ráðast á mig ef hann gæti. Hehe.. ;)
19. mars 2007 klukkan 19:54
Marta Sif Ólafsdóttir
Engin athugasemd
19mars

Leitirassgat

Ég er of löt þessa daganna. Það er fáranlegt, ég er búin að byggja upp massa samviskubit því ég er ekki búin að gera rass í heila viku. Þetta mun sko ekki vera svona þessa viku. Ég get ekki frestað því lengur að taka upp úr töskunni frá Danmerku og henda í þvottavél. Ástandið er orðið það slæmt að ég er farin að nota sokka sem ég verð pirruð á að vera í eftir 5 mín og fer aldrei í. Ég skil ekki af hverju ég er ekki búin að henda þeim fyrir löngu Ótrúlegt hvernig hægt er að verða pirraður á sokkum. Ég er kannski bara þessi pirraða týpa, verð pirruð á ölliu. Ég verð hræðileg gömul pirruð kerling. shit. Piparjónka, með engann mann, engin börn, bara þrjá ketti. Síðan verð ég svo rík að ég verð með vélmenni sem setur í þvottvél og tekur upp úr töskum fyrir mig. ahhhh... sweat live. hehe.. Já þetta er bara fín stefna í lífinu. Maður á bara að gera svona raunæar kröfur skiljiði.

Það er mikill snjór hér á Ísafirði. það eru búin að falla nokkur snjóflóð hér og þar á vestfjörðum, aðalega á vegum og út í sveit, sem þýðir beisiklí að ég er föst inn í bænum. Ekki það að ég sé að fara neitt, bara fyndin tilfining. Snjórinn nær mér upp að hnjám og ég kemst ekki út úr húsinu nema sökkva mér í snjóinn. Því jú, ég hef ekki drullst til að moka, setja í þvottavél er ofar á daskrá og nei ekkert er að gerast í þeim efnum. Ég tók myndir í dag af þessum snjó bæ sem ég bý.



Mjög skemmtilegt og kalt. Ég fór með köttinn minn út í göngutúr áðan. Ég er altaf með samviskubit að halda honum inni. Ég komst af því að ég er að gera honum greiða. Honum líkar ekki vel útiveran. Ég held hann muni aldrei fyrirgefa mér þetta. Hann mjálmaði eins og ég væri að reyna að drepa hann og skalf. Neitaði að fara úr fanginu frá mér. Hann er bara þessa mjúka týpa skiljiði..
19. mars 2007 klukkan 00:02
Marta Sif Ólafsdóttir
Engin athugasemd
17mars

SNJOR!

það er búið að snjóa like crazy seinustu daga! Núna er einmitt að snjóa svona risa jólasnjó og bærinn er bara á kafi í snjó! Ég hef bara ekki séð annað eins. langar svvvvoooo á skíði! :D

Ég var að vinna í fyrsta skipti a[ vinna ein um helgi, það gekk bara vel. Var stanlaust eitthvað að gera en þetta reddaðist allt saman. Enginn pirraður, bara stemmari á liðinu. :)

Ég var að lesa mjög fyndna grein á bb.is sem er bæjarblaðið. Þið kannist kannski við auglýsinga herferðina fyrir coke zero, ,,af hverju ekki að eiga kærsutu með ZERO drama" o.s.f. Alla vega þá er coke Zero komin með besta staðin í Samkaup, leið og maður kemur inn, fullt af eitthverjum skiltum og voða flott. Nema hvað, á einu skiltinu stóð ,,Af hverju ekki kynlíf með ZERO forleik" þetta fór ekki vel í fólk. Var skiltið tekið niður vegna þess að kvartað hefði verið mikið út af því að það særði blygðunarkennd viðskiptavina. Einn viðskiptavinurinn sagði að slagorðið hvetti mögulega til ofbeldis hjá ungum drengjum...

Ha? Er ekki allt í lagi hjá fólki eða? Þetta er hlægjilegt! Ég ætla ekki að trúa því að fólk sé svona gamaldags hérna á vestfjörðum. Ég meina að þetta slagorð ýti undir ofbeldi, ég held nú að sjónvarp og tölvuleikir sjái algjörlega um það. Ég skil ekki hvernig hægt er að tengja þessa suglýsingu við ofbeldi. HALLÓ!
17. mars 2007 klukkan 16:51
Marta Sif Ólafsdóttir
2 athugasemdir
15mars

Fegurð

Ungfrú suðurland er á morgun og er ég með tvo fulltrúa í keppninni ef má orða það svo. Það eru þær Sirrý og Harpa hveró vinahópnum! Ég væri mikið til í að sjá þetta en ég verð með þeim í anda. Það er hægt að fara inn á þennan link http://b2.is/?sida=tengill&id=226676

Ég er búin að kjósa, legg mitt að mörkum til að styrkja þær stúlkur en síðan fór ég eitthvað að skoða þessa síðu betur og já eitthvernvegin endaði ég inn á þessari síðu: www.mrworld.tv/ Já það er rétt þetta er heimasíða Mr. world. Ótrúlega áhugaverð síðan og það er miklu meira vit í þessari keppni heldur en Miss world því gaurarnir þurfa að fara í alls konar keppnir sem reyna á líkama og sál. Og þá kemur líka betur í ljós alvöru karakter gauranna, svo þetta er um meira en flotta kroppa þótt VÁÁÁ flottir gaurar marr... Grrrr... Samt líka mikið magn af silly gaurum og heffí fallærislegum ég mæli alveg eindregið með þessari síðu.

Þessi gaur er í miklu uppáhaldi hjá mér. WWraarhhh!


Hot or what? Já þetta er sko Mr. Lebanon.

En hvað finnst ykkur um okkar gaur? Ég held að hann eigi ekki séns miðað við hina sko. Eitthvað aulalegur greyjið.


En ekki eins aulalegur og þessi...

Já Mr. Singapore ekki alveg að virka.
15. mars 2007 klukkan 20:08
Marta Sif Ólafsdóttir
1 athugasemd
13mars

Danmörk, Reykjavík and then back to ísafjörður

Það er búið að vera bilað síðan ég bloggaði seinast. Þið verðið að afsaka þennan seinagang en hljótið að skilja. Okei, sko ég hef frá rosa miklu að segja en ég ætla að reyna að segja frá eitthverju alla vega...

Eins og þið vitið fór til Danmerkur að heimsækja Jónínu vinkonu! Það var ótrúlega gaman að koma þangað enda hef ég aldrei komið til danmerkur áður. Og auðvita æðislegt að fá að hitta Jónínu loksins. Fyrsta kvöldið var soldið djamm... Við byrjuðum á að fara á reggí kvöld á eitthverjum stað ásamt Aldísi og Hildi.



Þaðan fór ég og Jónína á eitthvern klúbb þar sem var dillað rassinum! Nokkur hress staður þarna. þegar við komum út funudm við ekki lyklana af hjólunum og svona og á meðan þessu lyklastússi stóð kom þessi gaur upp að okkur og bulla eitthvað á dönsku. Ég skildi nottla ekkert hvað maðurinn var að segja... Samræðurnar okkar voru eritthvern veginn svona:

Ég: ,,I don´t understand, sorry."
hann: ,,ohh, we have this game here called paper, rock, scissers, you know it?"
Ég: ,,Yes.."
hann: ,,I want you two to play it"
Ég: ,,ok... why?"
hann: ,,The one who wins, gets to fuck me"
Ég: ,,OKEI! JÁÁÁÁ! EINMITT! ÞETTA ER DANMÖRK JÁ! OKEI!!"
hann: ,,You are realy lucky if you get to fuck me. I am realy good in bed. Or you can both come. I have a realy big penis. Do you wanna see it?"
Ég: ,,NOOOOOOOOO!"

Nei nei gaurinn tók vininn út og sýndi okkur gripinn.. Hann fór á endanum.Og nei við fórum ekki með honum heim. ;)

Á fimmtudeginum svaf ég mikið. :/ rólegur dagur, hehe. Það var líka þennan sem allt byrjaði að vera vitlaust. Þá er ég að tala um Ungdomshuset og allt það brjálæði. Jónína býr bara í næstu götu við götuna sem allt var í gangi á. Við fylgdumst með þyrlum og löggubílum út um gluggann og í fréttunum. Ákvaðum ekkert að vera að taka þá í þessu.

Á föstudeginum fékk ég að prufa að vinna á estate þar sem Jónína vinnur. það mjög skemmtilegt að fá aðeins að taka í espressovél, it´s been a while. Mikið af skemmtilum hugmyndum á þessu kaffihúsi. Gaman að vinna aftur með Jónínu líka like in the old days. Um kvöldið var djamm, ekki mikið um það að segja svo sem nema ég var drukkin og tók marga tugi af myndum af sjálfum mér inn á klósetti. Sem er fyndið.



Á leiðinni heim mættum við tveimur brennandi bílum á götunnu, sem var soldið spes... maður lendir ekki í því á hverjum degi. Hehe. Danmörk í mínum huga = borgarastyrjöld.

Á laugardeginum fór ég að hitta Gyðu vinkona. það gekk mjög illa að hitta hana því ég vissi aldrei hvar ég var! Hjólandi um eins og asni út um alla kaupmannahöfn og Gyða að vera brjáluð á mér hlýtur að vera. Á endanum hitti ég hana og við chilluðum með bjór og fengum okkur pizzu, taka það framm að þetta var dominos pizza. Eftir þetta fórum við Jónína í afmæli rétt kíktum á einn stað en ég var eitthvað ekki í stuði og leiðileg svo við fórum eiginlega strax heim.

Sunndagurinn var hjólað og kíkt á kaffihús og hjólað meira og svona næs heit eins og marr á að gera í Kaupmannhöfn. Sá mikið af áhugaverðum kaffihúsum! Um kvoldið fengum bestu hugmynd í heimi að búa til Jónínu brauð! Þeir sem vita ekki hvað Jónínu brauð eru heppnir því þið mynduð vera að veltast um af hungri fyrir jónínu brauði alltaf. Ég get ekki hætt að langa í þetta! Og brauðið var snild, besti kvöldmaturinn í Dan.

Á mánudeginum keypti ég smá dót og leitaði dauða leit af hettupeysunni en fann hana ekki. :( En það er allt í lag því ég keypti geðveika tösku. Við fórum á enn fleiri kaffihús og enduðum á einu sem ég held að sé bara uppáhalds kaffihúsið mitt í Danmörku. Gaurinn sem á það er með eitthvað svona dýra fettish og það er allt í uppstoppuðum dýrum in a cool way. Eins eitt er svona ísbjörn klæddur í jakkaföt. Og allt þarna inni er bara cool og kósý. Dúkkuhausar fyrir ljósakrónur, strákar pissa í risa stórar varir, fullt af seríum og bara endalaust cool. Það var líka góður matur þarna og viti menn það var carlsberg á krananum. Yndislegt loka kvöld í Kaupmannahöfn með Jónínu.

En sem sagt daginn eftir fór ég aftur heim til Ísland, beint í Reykjavíkina. Ég var þar í 5 daga og það var mjög mikill hausverkur. Þurfti að hitta svo marga og náði ekki einu sinni að hitta alla sem ég vildi hitta, fólk ekki taka því nærri ykkur ef ég hringdi ekki. Þetta var bara kaás. En á þessum dögum var farið að sjá nýja fjölskyldu meðlimi, nokkra vini, eitt djamm, tónleikar, hitti meiri fjölskyldu, hveró og já. You get the point. Ég var orðin ógeðslega pirruð á laugardeginum og vildi bara komast aftur vestur.

Það var ekkert smá gott að komast aftur á ísafjörð, hitta Líó minn og vinna inn pening. Ég elska Ísafjörð!
13. mars 2007 klukkan 22:53
Marta Sif Ólafsdóttir
2 athugasemdir
08mars

Alveg að koma

Ég er að fara að henda inn almennilegri færslu. Ætlaði bara að láta vita að ég er búin að uppfæra linkinn Why Ísafjörður? hér við hlið og að ég er í Reykjavík framm á Sunnudag.
08. mars 2007 klukkan 02:03
Marta Sif Ólafsdóttir
Engin athugasemd
25febrúar

HRAUN


Hann Hjalti hérna ætlaði að koma til mín á miðvikudaginn. Við ætluðum að vera í chilli framm á föstudag því þá átti restin af hljómsveitinni að koma með flugi. Nema hvað, það var bara bilað veður og það var ekkert flogið a miðvikudaginn. Síðan á fimmtudaginn fæ ég sms og hann segist vera fara í loftið. Nei nei tveimur tímum seinna hringir hann og þá hafði flugvélin þurft að snúa við, þá var hann komin á vestfirði. Algjör BÖMMER. Þannig að þetta endaði þannig að þau keyrðu öll á föstudaginn, en reyndar kom Svavar og Hrönn með flugi. Þetta tókst! Þannig að það var ekkert tekið upp núna en vonandi seinna.

já Þau sem sagt komu á Föstudaginn og ég rústaði til íbúðinni til að koma fólkinu fyrir. Þau voru fjögur sem gistu hérna en það komast sko alveg 6, bara svo þið vitið það. ALDREI FÓR ÉG SUÐUR. ;) Ég var með sýnigu á Föstudaginn sem Hjalti ætlaði að koma á en þeir voru svo seint á ferðinni að hann komst ekki, því miður. En það var allt í lag því Hrönn og Svavar voru komin og þau komu á sýninguna! Ótrúlega gaman að fá þau. Ég bað þau reyndar um að kaupa fyrir mig banana... Ég nefnilega gleymdi að borða. Og.. Svavar kom með öruglega svörtust banana sem ég hef séð. Mjög fyndið. Ég borðaði þá ekki. En takk samt. Þegar sýningin var búin voru strákarnir komnir og þá voru léttir tónleikar á Krúsinni. Það heffí skemmtilegt, ég var að missa mig úr stemmara. Ég er komin í brjálaðan dans fíling fyrir Danmörk!!! Síðan fórum við bara heim í smá chill party. Daginn eftir var hægt að chilla smá áður en tónlistar veislan byrjaði. Strákarnir spiluðu fyrst í Gamla apótekinu sem er svona félagsmiðstöð fyrir ungt fólk. Það voru mjög skemmtilegir og þæginlegir tónleikar.



Gummi sem á Langa Manga bauð okkur öllum 10 í mat, hljómsveit og grúppíum. Þau búa í æðislegu húsi, ekkert smá kósý! Og það var búið að elda dýrindis kjötsúpu sem var ekkert smá góð. Ekki svona venjuleg íslensk kjötsúpa heldur bara ég get ekki líst því. Algjör snild. Síðan notla fóru allir að glamra á hljófæri enda á Gummi bara nokkur... ég meina þá voru strákarnir ekki búnir að koma við hljóðfæri í klukkutíma og öruglega farnir að klæja í puttana.



Eftir þetta voru tónleikar með.... hvaða hljómsveit haldið þið??? HRAUN! Á Langa. Pleisið var alveg pakkað og brjálaður stemmari. Fólk skemmti sér greinliega konunglega alla vega gerði ég það. Þar hitti líka hana Kolbrúnu vinkonu mína sem ég er að vinna með og náði að draga með okkur á Krúsina seinna meir.

(Hildur og Sara, grúppíur að sunnan ;))

(Ég og Kolbrún)

En þar voru næstu tónleikar. Og við allar þangað. Þetta var geggjað stuð, það var dansað út eitt og strákarnir bilaðslega hressir. Ég og Hrönn misstum okkur aðeins með myndavélina. Snildar myndir. Við vorum að vera ógeðslegar og það tókst helvíti vel verð ég að segja.




Eftir þetta var nú bara haldið heim og farið að sofa. Síðan fóru allir um hádegi í dag. Enda langur akstur fyrir höndum. Og viti menn, komið æðislegt veður. Leið og fólkið fer. Týpíst. Líó var alveg í essinu sínu um helgina, allir að leika við sig og síðan fór hann á milli manna á nóttinnu kúrði. Ekki feiminn! Þetta var ógeðlsega skemmtilegt og ef þið vitið ekki hvað Hraun er þá eruð þið að missa af miklu. Ótrúlega mikið af fallegum lögum sem þeir eru að spila en þeir eiga líka sína villtu hlið. Góð blanda. Slóðin á heimasíðu þeirra er Hraun.tk og myspace.com/hraunhraun. Mæli eindregið með þessari hljómsveit. Tékkið á henni. Ég náði að fara á 4 tónleika með þeim um helgina plús meira spila á milla tónleika og ég er sko alls ekki komin með leið á neinum lögum. hehehehe. Það eru fleiri myndir frá helginni hér til hliða í Myndir.

En núna er ég byrjuð að þvo þvott og svona enda fer ég suður eftir tvo daga og svo bara DANMÖRK. FUCK YYEEEAAAHHHHH!
25. febrúar 2007 klukkan 15:37
Marta Sif Ólafsdóttir
6 athugasemdir
24febrúar

Nágrannar.

Ná-grannar. Búa náið. mis náið. Við nágrannarnir í mínu húsi erum mjög miklir NÁ-grannar. Ég hef sagt ykkur frá kínverjanum sem býr fyrir hliðin á mér. Hann er reyndar tælendingur.. Ég veit alveg hvernig tónlistarsmekk hann er með, ég veit hvenær hann er búin að vinna á kvöldin, ég veit hvernig bíómyndir hann fílar OG ég veit hvenig kærastan hans fær fullnægingu. Mér finnst það frekar kósý að heyra í tali hinum megin við veginn. Ekki miskilja mig, ég er alls ekki að kvarta.

Íbúðin mín er á tveimur hæðum, á fyrstu hæðinni er bara baðherbergið og útidyrahurðin og á efri hæðinni er restin. Sem sagt fyrir hliðin á mér uppi býr tælendingurinn EN fyrir neðan restina og þá fyrir hliðin á baðherberginu er önnur íbúð. Ég hef aldrei heyrt neitt þaðan. Hélt að það væri engin að leigja þar. Nema hvað, Sæli sem ég er með í leikfélaginu sagði mér að það væri strákur sem bjyggi þarna og héti Auddi, hann væri búin að vera í Þýskalandi í eitthverjar vikur og væri að koma heim. Þarna kom skýringin á því. Alla vega, þá er hann Auddi greinilega komin heim. Og ég komst að því að ég heyri miklu meira í honum heldur en tælendingnum. Hann spilar á gítar, og er að taka mjög skemmtileg lög, Barfly er eitt af aðal lögunum sem hann er að taka þessa dagana og bara brjálaður stemmari á klósettinu hjá mér. Ég er mjög oft syngjandi með honum hinum megin við veginn. Þegar hann er ekki að glamra á gítarinn þá er hann að með tónlist í gangi sem er mun skárri en hjá tælendinginum. Í fyrradag hringdi síminn hjá honum og ég heyrði ALLT sem hann sagði því ég var á baðherberginu hjá mér.

Í gær var ég á Krúsinni ásamt fleira fólki og Hraun var að spila. Ég segi ykkur alla þá sólarsögu þegar hún er búin. Any ways, Það er fólk sem situr hjá okkur og þekkti ég tvö af þeim og hinir eru eitthvað að spjalla og svona, voru á sýningunni hjá mér. Rosa gaman að hitta fólkið. Nema hvað! Einn af þessum strákum spyr mig hvort ég búi ekki á sundstræti 41 lengst til hægri... ,,Ert þú Auddi?!?!?" Segi ég og já já þetta var hann Auddi NÁ-granni minn! Síðan spjölluðum við saman og ég segist heyra mikið í honum og sagði honum með þetta að ég væri oft að syngja með honum og svona, voða fyndið og allt það. En síðan fór hann að tala um hvað hann heyrir mikið í mér! MY GOD.

Auddi: ,,Varstu að spila lítill fugl með 200.000 naglbítum í gær?"
marta: ,,JÁ! Ertu ekki að grínast ég var að raula það með gítarnum sko."
Auddi: ,,Hehehe, síðan ertu líka altaf að syngja eitthvað annað lag er það ekki?"
Marta: ,,Hehehehe! já klósettlagið mitt, það fjallar um skeinipappír! Ég trúi ekki að þú hafir heyrt mig syngja um klósttpappír..."
Auddi: ,, Hahahha, Já vartsu síðan ekki að æfa þig fyrir sýninguna í fyrr í kvöld?"
Marta: ,,Eeeeee, júúúúú.... Geri það altaf þegar ég er að mála mig...."
Auddi: ,,getur verið að þú hafir verið að PUMPA Í VINDSÆNG Í DAG?"
(ég dett í gólfið af hlátri og er síðan að veltast þar um í smá tíma þegar ég loksins drulla út úr mér.
Marta: ,,Ertu ekki að fokkin grínast!? Já ég var að pumpa í vinsæng, JÁ!"

Ég og Auddi erum sem sagt mjög nánir NÁ-grannar. við töluðum líka um að fara kannski bara að spila í saman inn í sama herbergi í staðin fyrir að vera að spila á gítar sitt hvorum megin við vegginn. Ég er alla vega rosalega ánægð að hafa hitt herbergisfélaga minn. Ég veit líka núna að ef ég fer með karlmanni heim til mín... Þá mun Auddi heyra ALLT.
24. febrúar 2007 klukkan 14:33
Marta Sif Ólafsdóttir
2 athugasemdir
20febrúar

Saltkjöt og baunir, TÚKALL!

Haldið ekki að Malla frænka hafi ekki boðið mér í saltkjöt og baunir. Mér finnst saltkjötið mjög gott en ég hef aldrei getað borðað baunasúpu. Áferðin er bara ekki að virka.

Það er komin staðfesting á því að Hjalti komi á morgun! Og restin af hljómsveitinni ásamt grúppíum þ.a.m. Hrönn koma á Föstudaginn. Hljómsveitin Hraun ætlar að spila á Krúsinni laugardagskvöldið, sem verður snild. Já Hjalti kemur með nokkur hljóðfæri og tölvuna sína. Planið er að taka upp kannski nokkur af mínum lögum.. Kannski marr drullist til að henda lögum inn á myspace. Það gerist ekkert nema marr gerir það sjálfur ekki satt. ;) Ég er búin að vera sko sveitt að taka til fyrir liðið. Ohh mér finnst ég altaf vera að taka til. Líó var ekki beint sáttur við ryksuguna... Ég skil hann vel, ég þoli ekki ryksugur, ég þoli ekki að ryksuga og ég þoli ekki að heyra í ryksugu og það versta sem ég veit um er að vakna við ryksugu.

Síðan er ég bara búin að vera að knúsast með honum Líó mínum. Ég tók myndir af honum til að sýna ykkur hvað hann er mikið krútt!!

Finnst ykkur ekki rúmið hans flott? Ég nefnilega saumaði púðann sem er undir og koddana sjálf. :) Úr gömlum dúkum sem ég keypti fyrir löngu í Koló. Ég vissi að þeir myndir koma sér að góðum notum einn daginn. Mér fannst þeir bara svo ógeðslega flottir! :D
20. febrúar 2007 klukkan 23:41
Marta Sif Ólafsdóttir
6 athugasemdir

Auglýsing

Aldrei fór ég suður

Könnun

Ætlar þú á aldrei fór ég suður?

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...